Fréttir

Hér munum við birta fréttir af Sönglagakeppni Vestfjarða:

10-05-2010
14 lög komast í úrslitakeppnina
Valnefndin hefur nú valið 14 lög af ríflega 50 innsendum lögum til að taka þátt í úrslitum Sönglagakeppni Vestfjarða. Það tók valnefndina heila viku að komast að endanlegri niðurstöðu, en að sögn nefndarfólks sóttist verkið seint sökum fjölda góðra laga og texta sem send voru inn í keppnina. Um leið og við óskum þeim höfundum sem komast áfram til hamingju, viljum við þakka öllu því frábæra fólki sem sendi inn lög, fyrir þátttökuna.

Lögin 14 sem keppa til úrslita
  • Fuglinn frá Vestfjörðum
    Lag: Gísli Freyr Eggertsson - Rvk.
    Texti: Sami
  • Hugsa heim
    Lag: Hjörtur Traustason - Rvk.
    Texti: Arnar Heiðarsson - Rvk.
  • Vestfirðir
    Lag: Baldur Geirmundsson - Ísafirði
    Texti: Margrét Geirsdóttir - Ísafirði
  • Heima
    Lag: Trausti Bjarnason - Rvk.
    Texti: Magnús Þór Sigmundsson - Hveragerði
  • Alltaf, alltaf
    Lag: Ingvi Þór Kormáksson - Rvk.
    Texti: Sami
  • Fugl fyrir vestan
    Lag: Helgi Rafn Ingvarsson - Kópavogi
    Texti: Sami
  • Á Vestfjörðum
    Lag: Óskar Guðnason - Rvk.
    Texti: Guðbjartur Össurarson - Höfn
  • Djúpið
    Lag: Íris E. Jónsdóttir - Rvk.
    Texti: Stefán Finnsson - Rvk.
  • Lognið
    Lag: Agnes Sólmundsdóttir - Þingeyri
    Texti: Sami
  • Óður til Ísafjarðar
    Lag: Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm - Mosfellsbæ og Erla Gígja Þorvaldsdóttir
    Texti: Þórdís Jónsdóttir - Sauðárkróki
  • Einn á báti
    Lag: Lýður Árnason - Bolungarvík
    Texti: Sami
  • Faðmur Vestfjarðanna
    Lag: Einar Örn Konráðsson - Keflavík
    Texti: Sami
  • Spariskórnir glansa
    Lag: Karl Hallgrímsson - Akureyri
    Texti: Sami
  • Vestfirðir
    Lag: Ægir Örn Ingvason - Álftanesi, Gunnar Vigfús Guðmundsson og Benjamín Hrafn Böðvarsson
    Texti: Ólafur Sv. Jóhannesson - Rvk.

Skrifað af: Magnús Hávarðarson


05-05-2010
Ríflega 50 lög skiluðu sér
Frestur til að skila inn lögum í Sönglagakeppni Vestfjarða rann út á miðnætti sl. föstudag, 30. apríl. Ríflega 50 lög skiluðu sér í keppnina sem er töluvert meira en bjartsýnustu spár framkvæmdastjórnar gerðu ráð fyrir. Valnefndin hefur verið að störfum síðan um síðustu helgi og er gert ráð fyrir að hún skili niðurstöðum sínum fyrir eða um næstu helgi. Þá verður ljóst hvað lög munu keppa til úrslita og verður í kjölfarið haft samband við höfunda laganna sem komast áfram og næstu skref kynnt.
Skrifað af: Magnús Hávarðarson


21-04-2010
Lögin farin að skila sér - 9 dagar til stefnu
Nú eru 9 dagar eftir af skilafresti og eflaust margir laga- og textahöfundar að hamast við að ljúka við framlög sín til keppninnar. Nú þegar hafa nokkur lög skilað sér inn um bréfalúguna þannig að útlitið virðist gott. Um 400 manns hafa gerst aðdáendur keppninnar á Facebook og bætist stöðugt við. Keppnin hefur vakið athygli utan landsteinanna, en á dögunum hafði ung og efnileg pólsk söngkona samband með tölvupósti og vildi fá að koma fram á úrslitakvöldunum sem skemmtiatriði. Eins hafa ýmsir flytjendur haft samband og lýst yfir áhuga á að flytja lög sem komast áfram. Áhugasamir lagahöfundar hafa verið í sambandi til að fá nánari upplýsingar um eitt og annað sem viðkemur keppninni.
Skrifað af: Magnús Hávarðarson


11-04-2010
Mikill áhugi á Sönglagakeppni Vestfjarða
Mjög mikill áhugi virðist vera á Sönglagakeppni Vestfjarða, ef marka má heimsóknir á vef keppninnar - songvakeppni.is. Frá því að vefurinn var opnaður hafa daglega milli 250 til 300 "júník" gestir heimsótt vefinn. Verður það að teljast harla gott því ekki er úr miklu fjármagni að spila til auglýsinga. Keppnin hefur eignast marga velunnara sem hafa verið mjög duglegir að "boða fagnaðarerindið", t.d. á Facebook og blogsíðum sínum. Er öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóg hér með þakkað og þeir jafnframt hvattir til góðra verka áfram í þágu keppninnar.
Skrifað af: Magnús Hávarðarson


08-04-2010
Í bítið á Bylgjunni fjallaði um Sönglagakeppni Vestfjarða í morgun
Heimir og Solla spjölluðu við Magnús Hávarðarson um tilurð og framkvæmd keppninnar í skemmtilegu spjalli.
Hérna má hlusta á upptökuna
Skrifað af: Magnús Hávarðarson


06-04-2010
Sönglagakeppni Vestfjarða opnar síðu á Facebook
Slóðin er hérna
Skrifað af: Magnús Hávarðarson


Hönnun: Styx Iceland