Þátttökureglur
- Sönglagakeppni Vestfjarða fer fram með úrslitakeppni, einni eða fleiri, þar sem 10-12 lög sem valin hafa verið úr innsendum lögum af sérstakri valnefnd, keppa til sigurs. Nákvæm dagsetning úrslitakeppninnar verður ákveðin og auglýst þegar ljóst er hvaða lög keppa til úrslita.
- Rétt til að senda inn lög og texta hafa allir þeir sem hafa áhuga á keppninni.
- Innsend lög og textar skulu vera óútgefin verk og lengd þeirra skal vera ca. 3 mínútur. Hvorki lag né texti má hafa komið út áður í neinu formi og né verið flutt opinberlega.
- Sönglagakeppni Vestfjarða getur sett sig í beint samband við lagahöfunda til að óska eftir lögum frá þeim til að tryggja lágmarksfjölda innsendra laga. Eins getur Sönglagakeppni Vestfjarða framlengt skilafrest, sé á því talin þörf af sömu ástæðum.
- Engin takmörk eru á fjölda laga sem hver laga- eða textahöfundur má senda í keppnina. Skilyrði er að textar séu á íslensku og feli í sér skírskotun til Vestfjarða með einhverjum hætti.
- Innsent framlag í keppnina skal berast á geisladiski (CD) og söngtextinn fylgi með á sérstöku blaði. Aðeins má senda inn eitt lag á hverjum geisladiski, þar sem undirspil og ein eða fleiri söngraddir þurfa að gefa greinilega til kynna hvernig laglínan er. Hver og einn geisladiskur skal vera í sérstöku umslagi, sem merkt er með heiti lags og leyninafni höfunda(r). Einnig skal annað lokað umslag fylgja með, þar sem fram kemur rétt nafn/nöfn höfunda(r), heimilisfang, símanúmer og netfang, ásamt undirrituðu þátttökueyðublaði keppninnar.
- Framlag til keppninnar ásamt þátttökueyðublaði skal senda til Sönglagakeppni Vestfjarða, Miðtúni 35, 400 Ísafirði fyrir miðnætti föstudaginn 30. apríl 2010.
- Framkvæmdastjórn keppninnar skipar valnefnd sem velur þau lög sem munu taka þátt í úrslitakeppninni. Valnefnd fær eingöngu vitneskju um leyninöfn höfunda og heiti laga en fær ekki upplýsingar um nöfn höfunda fyrr en hún hefur skilað niðurstöðum sínum. Ekki er uppgefið hverjir skipa valnefnd.
- Þegar valnefnd hefur lokið störfum verður haft samband við höfunda laga og texta sem komast áfram í úrslit. Höfundar geta tilnefnt aðalflytjanda laga sinna, en sérstök hljómsveit keppninnar mun sjá um undirleik og útsetningar í samráði við höfunda.
- Þegar tilkynnt hefur verið um hverjir komast áfram í úrslitakeppnina geta laga- og textahöfundar ekki dregið lög sín og texta út úr keppninni.
- Lög og textar sem keppa í Sönglagakeppni Vestfjarða mega ekki koma út í neinu formi fyrir úrslitakeppnina.
- Allir þátttakendur, laga- og textahöfundar ásamt flytjendum, samþykkja að tónlist þeirra og flutningur verði gefinn út undir nafni Sönglagakeppni Vestfjarða, í hvaða formi sem keppnin ákveður.
- Laga- og textahöfundar skuldbinda sig með undirskrift sinni á þátttökueyðublaði að hlíta þessum reglum í einu og öllu.
- Sönglagakeppni Vestfjarða áskilur sér rétt til að breyta reglunum, túlka þær nánar og skera úr um öll vafaatriði sem upp kunna að koma. Eins áskilur keppnin sér rétt til þess að slá úrslitakeppnina af, berist engin frambærileg lög að mati valnefndar
(Byggt á reglum Söngvakeppni Sjónvarpsins)









