Verðlaun

Sigurvegari Sönglagakeppni Vestfjarða hlýtur glæsileg verðlaun í boði eftirtalinna aðila:

Tankurinn – Hljóðver við Önundarfjörð
Gefur sigurvegaranum 10 stúdíótíma í fullkomnu hljóðveri sem staðsett er í einum fallegasta firði landsins. Hljóðverið ræður yfir frábærum tækjabúnaði, t.d. úrvali gítar- og bassamagnara, trommusetta, Hammond orgeli svo eitthvað sé nefnt. Önundur Pálsson er aðaleigandi Tanksins.
Tankurinn heimasíða

Hljóðfæraverslunin Rín
Gefur sigurvegaranum minnsta hljóðver í heimi. Hið fullkomna Micro BR, sem er örlítið stærri en iPod, er draumur tónlistarmannsins. Tækið býður uppá fjórar afspilunarrásir (plús 32 V-rásir), rauf fyrir SD minniskort, fjöleffektatæki, innbyggða trommutakta, stillitæki, MP3, USB, og fleira. Á heima í öllum gítartöskum og pokum. Sjá nánar
Rín heimasíða

Hótel Ísafjörður
Býður sigurvegaranum gistingu fyrir tvo í tvær nætur í glæsilegri aðstöðu.
Hótel Ísafjörður heimasíða

Flugfélag Íslands
Gefur sigurvegaranum flugfar fyrir tvo á flugleiðinni Reykjavík-Ísafjörður, báðar leiðir að sjálfsögðu.
Flugfélag Íslands heimasíða

Við Pollinn
Veitingastaðurinn Við Pollinn sem staðsettur er á Hótel Ísafirði, gefur sigurvegaranum kvöldverði fyrir 2 í tvo daga.
Við Pollinn heimasíða

Vesturferðir á Ísafirði
Bjóða sigurvegaranum ásamt gesti hans í eyjuna Vigur sem kölluð er Perlan í Djúpinu. Vigur er einn af þeim stöðum sem ferðafólk til Vestfjarða verður að heimsækja. Íbúar eyjunnar bjóða ykkur velkomin með afslöppuðu og rólegu fasi og það er sem tíminn standi kyrr. Farþegabátur fer daglega inn um Djúp og siglt er nærri landi. Á gönguferð um eyjuna fá gestir tækifæri til að skoða þúsundir fugla t.d. æðarfugl, lunda og teistu. Að henni lokinni er boðið upp á veitingar í Viktoríuhúsi. Komið aftur til Ísafjarðar 3-4 klst eftir brottför.
Vesturferðir heimasíða



Hönnun: Styx Iceland